Wednesday, 22 August 2012

Íslenska - Háskóli Íslands






Viðmælendur í kynningarmyndbandinu: Ásta Sigurjónsdóttr, Finnur Ágúst Ingimundarson, Guðrún Steinþórsdóttir, Helga Birgisdóttir, Kristján Gauti Karlsson, Svavar Steinarr Guðmundsson, Theódóra Anna Torfadóttir, Þorsteinn Árnason Surmeli og Sigríður Sigurjónsdóttir. Í íslensku er jöfnum höndum fengist við íslenskar bókmenntir og íslenska málfræði. Fjallað er um íslenskt mál og bókmenntir í samtímanum en jafnframt er sagan rakin og grafist fyrir um rætur íslenskra bókmennta og uppruna íslenskrar tungu. Í náminu öðlast nemendur víðtæka þekkingu á íslenskum bókmenntum og bókmenntafræði, máli og málvísindum. Námið hentar öllum sem hafa áhuga á að starfa á sviði menningar, miðlunar og íslenskra fræða í víðum skilningi. Hagnýtt gildi Grunnnám í íslensku veitir haldgóða almenna menntun og býr nemendur undir margs konar störf. Fólk með háskólamenntun í íslensku fæst við kennslu á öllum skólastigum og við fræðistörf, ma á rannsóknastofnunum á sviði íslenskra fræða. Margir leggja fyrir sig ritstörf eða önnur störf á sviði menningar og lista, fjölmiðlun af ýmsu tagi og útgáfustörf (sem fréttamenn, blaðamenn, ritstjórar, málfarsráðgjafar, bókmenntarýnar osfrv.). Menntunin kemur að góðum notum í öllum þeim störfum þar sem gott vald á íslensku máli og þekking á íslenskum bókmenntum og menningu er nauðsynleg. Félagslíf Félag íslenskunema, Mímir, stendur fyrir umfangsmiklu starfi á sviði fræða og skemmtanalífs. Félagið heldur árlegt Mímisþing þar sem nemendur flytja fræðileg erindi. Það ...
Video Rating: 5 / 5

No comments:

Post a Comment